![]() |
| Apríl 2008 |
Jæja, þá er litla stelpan okkar orðin 15 mánaða. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Erna Sólveig er alveg afskaplega dugleg og þægileg stelpa. Er dugleg að dunda sér sjálf að leik, sofnar sjálf í vagninum sínum á daginn og í sínu herbergi á kvöldin. Hún er hins vegar vel ákveðin og veit alveg hvað hún vill, en það er bara gott að láta ekkert vaða yfir sig :) Það er líka alveg ótrúlegt hvað svona lítil kríli skilja mikið. Hún veit t.d. alveg hvað á að gera við lykla. Ef hún finnur þá fer hún beint að útidyrahurðinni og beinir þeim að skráargatinu, hún ætlar út! Hún er líka orðin voða dugleg að benda á það sem við segjum henni, s.s. mömmu, pabba, dótabílinn og nefið sitt. Erna Sólveig fær stundum að horfa á Söngvaborg í sjónvarpinu (pabba hennar til mikillar gleiði). Núna er hún farin að suða um að vera sett í stólinn fyrir framan sjónvarpið og hættir ekki fyrr en diskurinn er settur í. Alveg með það á hreinu hvað hún vill gera. Annars gengur bara vel hjá stelpunni, hún er reyndar búin að vera dálítið mikið lasin og er á leið í nefkirtlatöku eftir helgina. En það verður vonandi bara allt betra með hækkandi sól.
Kveðja,
Mamma og Erna Sólveig

4 ummæli:
Veii! Nýjar myndir! -Og það ekkert smá flottar og skemmtilegar!
Erna Sólveig er nú meiri ofurskvísan!
Frábær sumargjöfin líka, hún verður örugglega mikið notuð..
Svo verðum við að hafa mömmu/gríslingahitting bráðum! ;)
Bestu kveðjur til ykkar!
Eva Lind og co
Rosalega er hún orðin stór.. rosa flottar myndir..já ekki leiðinlegt að fá svona sumargjöf. Það er svo gaman að hjóla í góða veðrinu
Hafið það sem allra best
Kveðja frá Selfossi
Þórunn Lísa og Sindri Þór
Rambaði hér inn af síðunni hans Óla Jóa. Innilegar hamingjuóskir með þessa litlu yndislegu dóttur ykkar. Hafið það alltaf sem best.
Bestu kveðjur
Eygló Björnsd. (gamli kennarinn þinn)
Jæja gott fólk..
-Erna Sólveig mín, þarf ég að fara að kenna þér að hlaða inn myndum?
Þú verður víst bara að taka þetta í þínar hendur fyrst að foreldrarnir hafa ekki tíma!! ;)
Hlakka til að sjá þig tilvonandi leikskólaskvísa!
Kv. frá Eggertsgötunni
Skrifa ummæli