miðvikudagur, 7. nóvember 2007

Októbermyndir

Októbermyndir


Jæja, þá koma inn myndir síðan í október. Alltaf nóg að gera. Mánuðurinn fór í að standsetja nýju íbúðina að Sæviðarsundi og flytja allt okkar hafurtask frá K2 og yfir á Sævó. Þá er þeim kafla í lífi okkar lokið og nýr og enn betri kafli hefst. Litla skottið er búin að taka miklum framförum í mánuðinum. Dróg sig orðið mjög kröftulega áfram svo hún náði orðið í allt sem hana langaði í og fór stundum upp á fjórar lappir í skriðstöðu en fór samt lítið svoleiðis af stað. Þetta er mjög skipulega gert hjá henni, fyrst með hægri hendi og svo með vinsti. Hún dróg sig líka mikið upp og var farin að standa upp allsstaðar sem hún mögulega gat. Gat verið pínu hættuleg stundum eins og að standa upp við leikgrindina á hjólum.....svo rann hún náttúrulega bara af stað...Hún er líka farin að labba pínu með. Núna í byrjun nóvember er Erna Sólveig farin að skríða alveg á fjórum fótum og klappar saman lófunum. Einnig segir hún hvað hún er stór....en það er nú ekki gert of oft. Hins vegar er hún nánast búin að vera klappandi síðan hún lærði að gera það. Set inn myndir og videó fljótlega af þessu.

2 ummæli:

Unknown sagði...

Nohh það er ekkert annað! -Maður hefur varla undan að skoða nýjar myndir allt í einu hérna á síðunni!! Mjög gaman!!
Til hamgingju með allt saman!
Hlökkum til að sjá ykkur¨..

Eva, Frikki og Skarphéðinn

Nafnlaus sagði...

Æ hún er svo mikið yndi!
Vonast til að sjá ykkur sem fyrst!
Kv. Guðrún María