mánudagur, 1. október 2007

Betra seint en aldrei – sumarið 2007



Jæja, þá koma loksins inn myndir - allt sumarið á einu bretti :) Þetta var nú meira skemmtilega sumarið. Þetta byrjaði nú ekki amalega. Fórum í byrjun júní til Mjóafjarðar þar sem Erna Sólveig var skírð. Heppnaðist það allt saman rosalega vel og var alveg meiriháttar gaman. Veðrið var geggjað og allir svo glaðir og ánægðir. Viljum við þakka ömmu og afa í Mjóafirði sérstaklega fyrir þetta allt saman. Frá Mjóafirði var farið í Þingeyjasýslu að Ytra-Fjalli til langömmu og langafa. Þar voru gefin saman í hjónaband amma og afi, Erna og Sævar. Var afhöfnin ofsalega falleg og brúðkaupið æðislega skemmtilegt. Eftir skírn og brúðkaup var haldið til Vestmannaeyja þar sem við vorum meira og minna það sem eftir var sumars. Þar var alveg yndislegt eins og alltaf. Bjuggum við hjá ömmu og afa á Smáragötu og nutum þess að vera með þeim ásamt því að hitta langömmu og langafa, vini og aðra ættingja. Frikki, Eva og Skarphéðinn komu í heimsókn til okkar til Eyja. Einnig Keli og Halldóra. Jón Kristinn, Magga og Laufey Brá voru líka dugleg að koma í heimsókn til Eyja í sumar. Höfðum við mikið gaman af því að hitta þau öll. Mikið stuð var svo á bænum þegar öll barnabörnin voru saman komin hjá ömmu og afa. Var alveg meiriháttar að fylgjast með krökkunum hvað þau höfðu ofboðslega gaman af því að vera saman. Hápunktur sumarsins átti svo að vera þjóðhátíð eins og alltaf, en litla skvísan ákvað að vera lasin þá helgi. Greyið litla fékk háan hita og var svo kominn með roða í eyrun svo hún þurfti að taka inn sýklalyf. Var því lítið farið í dalinn þetta árið, við tökum þetta bara með krafti að ári liðnu :) Í lok sumars fór svo litla fjölskyldan saman í sumarbústað vestan við Borgarnes. Var voða gott að hafa það huggulegt þrjú saman í bústaðnum. En þá er fyrsta sumarið hennar Ernu Sólveigar liðið og tók hún miklum framförum. Hún styrktist vel og var farin að sitja óstudd um miðjan ágúst, þá tæplega sjö mánaða. Stuttu síðar eða tæplega sjö og hálfs mánaða stóð hún svo upp í rúminu sínu. Erna Sólveig smakkaði fyrst mat rúmlega sex mánaða. Það fyrsta sem hún fékk að smakka var banani í eldhúsinu hjá langömmu og langafa á Fífó. Það gekk ágætlega en hún átti það til að vera mjög dramatísk þegar hún fékk að borða í fyrstu skiptin, gretti sig ógurlega og kúgaðist eins og sést í myndamöppunni. Um sjö mánaða var hún orðin nokkuð góð í að borða. Jæja, látum þetta nægja í bili. Vona að það verði ekki eins langt í næstu myndaséríu ;)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HæHæ
Frábærar sumarmyndirnar :)
En Eyrún mig vantar svo meilið hjá þér.. Endilega sendu það á mig
iris.sig@internet.is

Bestu kveðjur
Íris Sig

Nafnlaus sagði...

En gaman að sjá nýjar myndir, æðisleg myndin af henni að standa upp í fyrsta skipti í rúminu, algjör montrófa.

kv.
Halldóra

Nafnlaus sagði...

Vei!! Nýjar myndir!! Ekkert smá glæsilegt eintak hér á ferð!! Æðislegar myndir!
Hlakka til að sjá ykkur, það verður vonandi sem fyrst! Verðum að kíkja á nýja pleisið!! Hafið það ávallt sem best!
Guðrún María og Jón Helgi