![]() |
| Mars fyrri hluti |
Þessi síða er tileinkuð Ernu Sólveigu og Agli Davíðsbörnum. Erna Sólveig er fædd þann 20. janúar 2007 kl 14:26. 3505gr og 51cm. Egill er fæddur 19. ágúst 2011 kl 10:27. 3275gr og 49cm
mánudagur, 26. mars 2007
Mars - Fyrri hluti
Áfram var nóg að gerast í mars. Við fjölskyldan fórum m.a. í skírn hjá Laufeyju Brá Jónsdóttur, litlan var í pössun í fyrsta sinn og fleiri gestir komu í heimsókn. Litla skvísan var algjör engill í pössuninni, svaf allan tímann :) Foreldrarnir skelltu sér á árshátíð læknanema. Þegar við vorum á leið út úr húsi ætlaði litla stúlkan að fara vakna aftur, héldum við að við fengjum því lítið að fara á árshátíð. Brá pabbinn þá á það ráð að kveikja á ryksugunni til að sefa litluna og viti menn....litla skvísan steinsofnaði og vaknaði ekki fyrr en eftir að foreldrarnir komu heim kl. 2 um nóttina :) Ekki erfitt að passa þessa skvísu!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

7 ummæli:
Hæhæ, en gaman að fá að sjá nýjar myndir. Þú stækkar ekkert smá hratt :)
Bestu kveðjur, Magga, Jónsi og Laufey Brá
Hehehe flott myndin með headphone-unum. Og hún er alveg rosa fljót að stækka.
Kveðja Jóna Heiða
Hæ skvísa!
Já tek undir með Möggu, þú stækkar hratt.. Yndisleg líka þegar þú brosir! Og er ég sérstaklega ánægð með þig í Man. Utd. búningnum !
Hæhæ, bíð spennt eftir fleiri myndum :)
Jæja er líka farin að bíða spennt eftir nýjum myndum! Langt síðan að við sáum ykkur fjölskylduna!
Þessi stúlka er klárlega lukkustúlk man. utd. #1 :)
Ég býð spennt eftir nýjum myndum, svo hljótum við Keli að koma fljótlega í heimsókn nú þegar hann snýr aftur heim úr hinni svörtustu...
Ekkert smá prinsessa.. sæt eins og foreldrarnir.. gangi ykkur sem allra vel í þessu hlutverki ..
Kveðja Eygló(vinkona Minnu)
Skrifa ummæli