laugardagur, 27. janúar 2007

1. VIKAN

Þá er fyrsta vikan í lífi litlu stúlkunnar okkar liðin. Þetta byrjaði aldeilis vel... héldum við... þegar sú stutta svaf alla fyrstu nóttina heima hjá sér. Daginn eftir fannst ljósmóðurinni hún heldur gul. Það var því ákveðið að senda okkur með hana upp á Barnaspítala til að láta mæla í henni blóðið fyrir gulu (lifrargildi). Í ljós kom að hún var nokkuð há í mælingunum og þurfti því að fylgjast vel með henni dagana á eftir. Gulubörn eru frekar löt í að drekka og sofa mikið en um leið er mjög mikilvægt að koma í þau vökva til að vinna á móti gulunni. Það var því mikil barátta fyrstu dagana við að koma í hana mjólk og þurfti að vekja hana reglulega til þess. Það virðist þó hafa dugað því lifrargildin fóru að lækka og hún slapp því við ljósameðferð.
Nú hefur taflið heldur betur snúist við því sú stutta heimtar sitt með reglulegu millibili og það vellur út úr henni mjólkin. Það má því segja að þessi fyrsta vika hafi verið sannkölluð rússibanaferð. Spennandi að vita hvernig næstu vikur verða.

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Yndislegar nýju myndirnar! ;)
Hafið það gott!

Nafnlaus sagði...

Kæru vinir,
Til hamingju með stúlkuna, gangi ykkur vel í uppeldishlutverkinu, Guð og gæfan fylgi fjölskyldunni.

Kæra Davíðsdóttir
Glæsileg ertu - og ótrúlega heppin með foreldra - vonandi áttu eftir að æfa fótbolta eins og pabbi og læra á túbu eins og mamma :-)

Hver á að skíra???

kv. Óli Jói.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með dóttur ykkar kæru vinir. Sendum hlýjar kveðjur frá Danaveldi.
Kveðja Óskar og Guðbjörg

Nafnlaus sagði...

Iss, allt of langt síðan ég kíkti hér inn. En ætlaði allavega að kasta á ykkur kveðju :) Er farin að telja niður dagana í að kíkja í heimsókn á Keilugrandann ;)
~*knús og kossar*~ frá Köben

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með dótturina. Hún er alveg gullfalleg :)
Kveðja,
Helga Björk

Nafnlaus sagði...

Æðislegar nýju myndirnar hún er algjört æði enda í fíflafjölskyldunni :o) sjáumst fljótlega kv úr Hafnarfirði Minna og co

Nafnlaus sagði...

Varð nú aðeins að kommenta á fatasmekk pabbans, humm. Eina fallega við þessa samfellu er rauðiliturinn í þessu merki þarna í miðjunni :) hehe
Mæli með að mútta kaupi fötin á snúlluna í framtíðinni :D hehe
~*knús og kossar*~ frá Köben

Nafnlaus sagði...

Elsku Davíð og Eyrún

Innilegar hamingjuóskir með litlu prinsessuna, hún er algjört æði!!

kv Harpa, Maggi og Tómas Bent

Nafnlaus sagði...

Elsku Eyrún og Davíð,

Til hamingju með prinsessuna, hún er svo falleg :) Gangi ykkur sem allra best, það hefði nú alveg mátt vera samt e-ð annað merki á samfellunni :)

Kossar og knús,
Lilja.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með krúttið og gott að heyra að guluvesenið varð ekki meira.
Sá þig keyra í dag Davíð og vinkaði þér og vinkaði en þú varst ekkert að taka eftir mér. Hér með færðu vink sem þú sérð.
Dagbjört 2. ári

Sif sagði...

Elsku Eyrún og Davíð!

Til hamingju með þessa gullfallegu stelpu - sorry Davíð en hún er alveg eins og mamma sín:o)
Nú fyrst fer lífið að hafa tilgang - best í heimi að eiga kríli!!!

Megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur.

Kveðja,
Sif og Haukur litli